Björk töffari
Barnabörnin mín sætu
STYRKTARSÍÐA Bjarkar
STYRKTARSÍÐA
Frábært efni
21.07.2011 20:02:50 / bjorkandersen

Björk Emilsdóttir Andersen látin

Kæru vinir

Töffarinn okkar, hún Björk hefur nú fengið hvíldina eftir langa og stranga sjúkdómsbaráttu. Sex ára hetjuleg barátta við þann illvíga sjúkdóm krabbamein að baki og nú hefur Björkin okkar fundið friðinn í sínum græna lundi.

Björk lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að kvöldi miðvikudagsins 20. júlí í faðmi fjölskyldunnar.

Björk hafði átt erfiða tíma síðustu mánuði og sér í lagi undanfarna sólarhringa. Hún fór í svefn fyrir tæpum þremur sólarhringum en áður tókst henni þó að hitta og spjalla einslega við sína nánustu og ljúka þeim verkefnum sem hún taldi sig eiga ólokið.

Í gærmorgun var ljóst orðið í hvað stefndi og þegar leið á kvöldið sleppti Björk og hélt á vit nýrra verkefna.

Mamma og Guðjón voru við hlið hennar, börnin þrjú, þau Iris Rún, Andri Már og Þóra Kristín, Pétur tengdasonur hennar og við systkinin, Anna Halla og Þröstur. Friður og ró færðist yfir Björk þegar stundin kom.

Við héldum litla kveðjustund á líknardeildinni og reyndum að hugga hvert annað. En maður finnur hve lítill og vanmáttugur maður er á slíkum stundum.

Fyrir hönd okkar sem reyndum að styðja Björk og styrkja gegnum stríðið, færi ég starfsfólki líknardeildarinnar dýpstu þakkir fyrir allt. Það geta engin orð útskýrt hversu mikils virði það var okkur, sem stöndum Björk næst, að eiga þau að.

Björk verður jarðsungin frá Langholtskirkju fimmtudaginn 28. júlí kl. 13:00.

Mamma okkar hún Erla Halls setti hugsanir okkar allra á blað í fallegu ljóði sem hún orti til Bjarkar við lagið „Í fjarlægð“.


Nú ertu ljúfan leidd á burtu frá mér

í ljósið inn sem læknar öll þín mein

og þrautir allar þungar færðar frá þér

nú fagnar þú sem fagurt blóm á grein.

Hugrakka vina héðan sendi nú

hinstu mína kveðju, ást og trú.

Til himinsala hefur þína vegferð

í heiminn þar sem eilíf birta skín.

>

En vissa mín og von um endurfundi

hún vekur upp minn kraft og mína trú

þá saman finnum frið í grænum lundi

og fléttum blómakransa ég og þú.

Nú englaskarar lýsi þína leið

létt þá verður burtför þín og greið.

Því hér í heimi hefur verki lokið

þú heldur ótrauð inn á nýja braut.


Kæru vinir hafið þökk fyrir allan stuðninginn, góðar kveðjur og styrk sem þið hafið veitt okkur á þessum erfiðu stundum.

Guð blessi Björkina okkar um eilífð alla.

Þröstur bróðir />


» 99 hafa sagt sína skoðun

08.07.2011 17:51:41 / bjorkandersen

Fréttir af mömmu

Góðan daginn gott fólk

Mamma bað mig að setja inn fréttir af sér.

Björk fær góða umönnun á líknardeildinni og það er allt gert til þess að halda henni verkjalausri.
Á miðvikudaginn, sjálfan afmælisdaginn hennar, fór hún á lansann og fékk mænulegg til auðvelda m.a. lyfjagjöf og ná betri verkjastillingu...vonandi.

Björk átti góðan afmælisdag í faðmi fjölskyldunnar (mikill hluti af okkur var kominn að norðan) þar sem við buðum starfsfólki og öðrum á deildinni í kaffi og héldum upp á daginn með stæl eins og sagt er :) Mamma var rosalega sátt við daginn og sagði sjálf við mig að þetta hefði verið fallegasti afmælisdagurinn sem hún hefur upplifað.

Mamma var mjög lág í blóði og fékk blóðgjafir í gær og í dag og er í raun allt önnur í dag en síðustu daga finnst mér. En auðvitað er hún orkulaus og vill sofa mikið og hvílast, eðlilega miðað við allt sem á undan hefur gengið.
Hún bað mig um kærar kveðjur til ykkar allra og þakkar allar góðar kveðjur en við fjölskyldan höfum reynt að lesa fyrir hana kveðjur af og til sem birtast hér :)

Bestu kveðjur
Iris Andersen


» 39 hafa sagt sína skoðun

02.07.2011 14:18:06 / bjorkandersen

Fréttir af Björk

Kæru vinir,

Björk bað mig að setja inn nokkrar línur af sér hér á bloggið.

Það eru alls ekki góðar fréttir af henni, hún hefur átt mjög erfiðar stundir að undanförnu og í raun verið mjög veik.

Því miður þá rætast ekki allir draumar eða langanir og ekki verður af því að Björk fái að halda upp á afmælið sitt utan sjúkrastofunnar.

Þrekið dvínar stöðugt og er lítið sem ekkert. Baráttuviljinn er farinn að láta undan síga og við sem stöndum henni næst reynum, ásamt yndislegu starfsfólki líknardeildarinnar, að sjá til þess að henni líði eins vel og hægt er við þessar kringumstæður. Nú er svo komið að Björk þarf að fá ógrynnin öll af verkjalyfjum og hefur sofið meira eða minna síðustu daga. Hún hefur því ekki tekið við heimsóknum nema frá sínum allra nánustu og verður svo áfram. Mamma er komin suður til hennar og er hjá henni alla daga á líknardeildinni.

Ég á enga ósk heitari en að geta fært ykkur betri fréttir af Björkinni minni en þar til hlutirnir breytast verðum við að  takmarka heimsóknir mjög.

Með bestu kveðjum og þökkum fyrir allan styrk ykkar og stuðning,

Þröstur bróðir.


» 50 hafa sagt sína skoðun

20.06.2011 23:48:36 / bjorkandersen

Erfiðar vikur að baki

Hæ öll,

Björk systir bað mig að setja hér inn nokkrar línur, enda langt um liðið frá því síðasta blogg var sett inn.

Björk hefur átt erfiðar vikur á líknardeildinni og við vorum mjög hrædd um hana um tíma. Allt lagðist á eitt, lungnabólgan var henni erfið, sýking bættist við og þrekið hvarf nánast. En rétt um sama leyti og sumarið birtist þá rofaði til hjá Björk. Hún er nú allt önnur manneskja og styrkist með hverjum deginum. Hún á þó nokkuð langt í land og hefur ekki mikið úthald.

Stómían er enn að stríða henni en þar er þó allt á réttri leið. Öll lyfjagjöf, verkjalyf og annað, hefur verið endurskoðuð og allt önnur og hressari Björk sem tekur á móti okkur nú en fyrir fáum dögum. Fjölskylda og nánustu vinir hafa kíkt til hennar í stutta stund á hverjum degi en Björk þarf fyrst og fremst á hvíld að halda þessa dagana, ekki síst andlega, enda hafa síðustu vikur reynt gríðarlega á hana.

Starfsfólk líknardeildarinnar hefur reynst henni hreint ótrúlega vel í öllum þessum þrengingum og ekki síður okkur sem næst henni stöndum. Það verður aldrei fullþakkað.

Eitt stórt ljós í öllu myrkrinu er að Björk sagði mér síðast í dag að hún væri svo gott sem verkjalaus.

Björk hefur alltaf skýr markmið og nú hefur hún sett stefnuna á að halda upp á afmælið heima eftir rúmar tvær vikur, þann 6. júlí. Þá verður Björk búin að vera á Landspítalanum og líknardeildinni í hartnær þrjá mánuði.

Nú treystum við á baráttuanda Bjarkar og almættið svo Björk nái þessu markmiði.

Björk sendir ykkur hlýjar og góðar kveðjur og þakkar allan stuðninginn.

Með kveðju, Þröstur bróðir.


» 34 hafa sagt sína skoðun

06.06.2011 12:56:08 / bjorkandersen

Dóttirin skrifar

Góðan daginn, smá blogg fyrir mömmu

ég skrifa fyrir hönd móður minnar þar sem hún liggur á líknardeildinni. Hún er búin að vera mjög veik síðustu daga en er nú eitthvað að rífa sig upp úr þessu, áttum reyndar ekki von á öðru þar sem báráttukonan mikla á í hlut.

Ég, maðurinn minn og amma (móðir Bjarkar) brunuðum suður um helgina og erum búin að eiga góða daga með henni. Björk fékk lungnabólgu í miðri síðustu viku og varð mjög lasin og varð í kjölfarið að hætta lyfjameðferðinni sem hún var nýbyrjuð á. Við stórfjölskyldan fórum svo á læknafund í gær og þar var staða Bjarkar yfirfarin. Nú þarf hún að taka einn dag í einu og við höfum fulla trú á því að hún nái sér :) hún ætlar sér að koma norður í sumar og eiga með okkur gæðastundir og hitta barnabörnin þannig að hún er hvergi nærri búin að gefast upp. Útlitið var ekki gott fyrir helgina en í dag var allt önnur kona sem tók á móti okkur á líknardeildinni í morgun þar sem stutt var í grínið og glensið hjá henni. En Björk mun vera eitthvað áfram á líknardeildinni og við lofum ykkur að fylgjast með henni áfram.

Þökkum fyrir allan hlýhug og kveðjur til Bjarkar og hún vill minna á styrktarreikninginn sinn ef einhver er aflögufær

bestu kveðjur Iris Andersen

» 28 hafa sagt sína skoðun

20.05.2011 12:18:06 / bjorkandersen

Engir sæludagar hjá mér þessa dagana.............

:haha:Hæ elskulaga fólk,þið .eruð dásamleg og ég vil þakka ykkur fyrir alveg frábær og falleg comment til mín hér á síðunni og vona að þið haldið því áfram.
Ég verð´hrærð í hjarta mínu að það skuli vera til eins mikið af góðu fólki eins og raun ber vitni.En nóg um það.
Ég fór ímína 2 jyfjagj0f á miðvikudag og er búin að halda mér í rúminu síðan þá sökum mikilla ógleði og vanlíðanar.Ég er samt ekki tilbúin að gefast upp og ætla að gefa þessu séns í einhvern tíma í viðbót þrátt fyrir að mig langi bara til að gefast upp núna,en það er ekki minn stíll.
'Eg vona alltaf á hverjum morgni þegar
eg vakna að mér sé ekki óglatt í dag en því miður hefur mér ekki enn orðið að ósk minni.
Annars er ég enn á líknardeildinni og vonast eftir útskrift eftir helgi,ég þrái ekkert smávegis að koma heim til mín og hafa hlutina eins og ég vil hafa þá.Enda er þetta að ver'ða gott búin að vera á spítala og svo hér síðan 2 apríl og ég er orðin pínu þreytt á þessu.Vona að þið njótið þessa fallega dags og verið góð hvort við annað og það þarf stundum lítið til að gleðja fólk eins og t.d.að brosa framan í úriilla konu á kassa í bónus,
þannig að við skulum vanda   okkur í  dag elskurnar.............

Love you töffarinn

» 46 hafa sagt sína skoðun

12.05.2011 09:42:16 / bjorkandersen

Meðferð nr.1 hefst í dag og ég er satt að segja dálítið kvíðin

Já góðan daginn elsku vinir og vandamenn og takk fyrir frábær og skjót viðbrögð við blogginu mínu.Þessi comment eru mér ómetanleg og þið getið aldrei ímyndað ykkur hvað þettar hlyjar sálinnin minni mikið og gefur mér mikið hugrekki,hugrekki til að takast´a við þær ákvarðanir sem ég þarf að taka osfrv.Þið eruð guðsgjafirnar mínar og fyrir það er ég þakklát og ég vona að þið látið ekki deigan síga núna,því ég þarfnast ykkar meira núna en nokkurntíman áður.
Ég tók þá ákvörðun á föstudaginn ásamt mínun fólki að hefja nýja lyfjameðferð og ath.hvernig hún færi í mig og ég hef alltaf tækifæri til að hætta ef allt er ómögulegt.En ég ætla mér að þrauka nokkrar og sjá svo bara til hvað gerist.
Það var ekki síður ykkur og fólkinu mínu að þakka að ég tók þessa ákv0rðun þannig að ég ætla að standa mig.Ég er þakklát guði mínum fyrir að koma með svörin til mín og hjálpa mér við þetta.
Nú sit ég hér og er með kvíðahnút í maganum um næstu skref en ótrauð held ég mínu striki.Það hefur verið yndislegt að vera hér á Líknardeildinni og á starfsfólkið allt þakkir skilið fyriri yndislegheit og hlýju.Ég vona að þið njótið dagsins og sólarinnar og verið góð hvort við annað.Eg ætla að láta þetta duga af mér í dag elskurnar.

Love you töffarinn:haha:


» 34 hafa sagt sína skoðun

05.05.2011 08:03:34 / bjorkandersen

Á leið á landsspítalann í deyfingu í bakinu

Góðan  og blessaðan daginn elsku vinir og vandamenn og innilegar þakkir fyrir skjót viðbrögð við blogginu mínu og öll þessi dásamlegu comment til mín,fyrir þetta er ég afar þakklát því þetta heldur mér á floti eins og vanalega.
'Ég er á leiðinni á landsspítalann til að fá enn eina deyfinguna í bakið þar sem meinvðrpin eru verst og það er bara frábært hvernig þetta virkar á mig,ég þarf töluvert minna af morfíni sem er algjörlega frábært og mér líður mun betur,en ég kvíði þessu alltaf jafn mikið.
Ég er með litlu tölvuna mína hérna á líknardeildinni og virðist vera erfitt að setja inn myndir og skrifa það sem mig langar það dettur allt út svona af og til,þannig að þetta verður ekki langt í dag.Mér líður þokkalega og er að læra að handleika stomað sem ég var nú hálfgerður klaufi í til að byrja með,en þetta er allt að koma.
Nú fólkið mitt kemur að norðan í kvöld og á morgun er þessi afdrifaríki fundur þar sem ég mun segja frá minni ákvörðun með lyfjajöf eða ekki.Ég er enn að hugsa og bið guð að koma með svörin til mín í dag og ég veit að það mun gerast.
En nú þarf ég að fara að drífa mig og ég heyri í ykkur seinna elskurnar og haldið þið endilega ennþá áfram að kvitta hér inni fyrir innlitið.

Love you töffarinn:haha:


» 36 hafa sagt sína skoðun

03.05.2011 16:21:44 / bjorkandersen

Kvíði fyrir því sem framundan er.......



Good morning
Hæ öll sömul og innilegar þakkir fyrir öll fallegu commentin sem þið hafið sent mér á síðustu dögum.Ég er ennþá á líknardeildinni þar sem fer afskaplega vel um mig og ég hef ekki yfir neinu að kvarta.Ég verð hér eitthvað í viðbót og er að leggja hausinn í bleyti til að komast að einhverri niðurstöðu varðandi það hvort ég ætla í fleiri lyfjameðferðir eða ekki.Þetta hefur valdið mér andvökunótttum og kvíðaköstum þar sem ég veit ekkert hvað ég á að gera í sambandi við þetta allt saman.
Ég tala við guð daglega og oft á dag til að biðja um einhver svör en það gengur heldur ekki nógu vel þar sem ég held að ég sé pínulítið óþolinmóð að bíða eftir svörum sem ég veit að koma til mín fyrr heldur en ég býst við.
Það verður fjölskyldufundur á fös.og þá koma börnin mín,mamma og systkini ásamt mökum til að viðra sýnar skoðanir á þessu öllu saman.En ég ætla bara að leggja þetta í hendurnar á guði og vona það besta.Ég er í litlu tölvunni minni og kann nákvæmlega ekkert á hana þannig að þetta verður bara stutt í dag.Vona að þið verðið áfram dugleg að commenta og gefa mér pepp til að halda áfram og mig langar að minna ykkur á styrktarreikninginn minn sem er 0311-13-685 kt.0607625119 ef þið eruð aflögufær elskurnar.......en það eru ómetanleg commentin ykkar núna á þessum erfiðu tímum og ég vona að þið haldið áfram að skrifa her inn,,,,ég er ykkur svo innilega þakklát fyrir það..........því þá veit ég að það eru einhverjir að fylgjast með mér.Guð veri með ykkur öllum og ég reyni að skrifa eitthvað meira næst ef ég kemst í betri tölvu.....

Love you töffarinn:haha:


» 28 hafa sagt sína skoðun

21.04.2011 12:51:49 / bjorkandersen

Fréttir af Björk

Hæ öll,
Það eru í raun bæði góðar fréttir og slæmar af Björk. Allt hefur gengið upp á við eftir stómaaðgerðina og ég trúi því að Björk nái fljótt tökum á því. Hún fór í morgun á líknardeildina en ekki er víst hversu lengi hún verður þar. Það varð því ekkert af ferðalagi til Akureyrar um páskana, því miður.

Í vikunni fékk Björk þær fréttir að ekkert yrði af geislameðferð. Meinvörp hafa náð að sá sér um kviðarholið og því ekki unnt að geisla. Það voru afar slæmar fréttir.

Nú stendur hún frammi fyrir fáum kostum í sambandi við lyfjameðferð. Búið er að reyna margvísleg lyf og annaðhvort hefur Björk tekið þeim mjög illa, fengið miklar aukaverkanir og annað slíkt eða lyfin hafa ekki virkað sem skyldi. Nú er það Bjarkar að ákveða hvort hún gengst undir lyfjameðferð þar sem líkur á árangri eru ekki miklar og hætta á aukaverkunum töluverð, miðað við hennar sögu. Við sem næst Björk stöndum getum haft á því skoðun hvort reyna eigi lyfjameðferð en endanlega ákvörðun tekur hún sjálf. Sama hver sú ákvörðun verður þá virðum við hana og styðjum eftir mætti við Björk.

Björk sendir ykkur góðar kveðjur og þakkar allan stuðninginn.

Með kveðju, Þröstur bróðir.


» 35 hafa sagt sína skoðun

14.04.2011 23:38:08 / bjorkandersen

Fréttir og kveðja frá Björk af Landspítala

Hæ öll - Örlitlar fréttir af Björk

Aðgerðin sem Björk gekkst undir sl. þriðjudag gekk eins og til var ætlast. Vitaskuld tók þetta á líkamlega og ekki síður andlega en Björk hefur sýnt ótrúlegan styrk og baráttuþrek. Björk þurfti reyndar að bíða nær allan þriðjudaginn eftir að komast upp á skurðstofu en loks kom að henni þegar farið var að nálgast kvöldmat. Ég leit til Bjarkar skömmu eftir að aðgerðinni lauk og þá átti hún erfiða tíma. Nóttin eftir aðgerð var líka allt annað en skemmtileg en aðhlynningin á vöknun og ekki síður á skurðdeildinni á 12G var með eindæmum góð.

Þegar ég kom svo til Bjarkar að morgni miðvikudags þá tók hún á móti mér á skurðdeildinni, standandi upp á endann á sjúkrastofunni og brosti breitt til mín. Baráttuvilja hennar og sálarstyrk virðast engin takmörk sett og hún er staðráðin í að sigla hratt og örugglega gegnum þessa lotu.

Hún er nú komin aftur á 11E til þeirra sem þekkja hana best. Og allt gengur nú upp á við. Björk fékk líka þessa fínu máltíð í kvöld, fisk og kakósúpu - fyrsta máltíðin í næstum hálfan mánuð. 

Hún er vitaskuld enn að venjast breyttum aðstæðum en það mun koma með góðri hjálp.

Framundan hjá Björk er nú að læra handtökin við stoma, pokaskipti og annað og nýtur hún frábærrar aðstoðar Oddfríðar stómahjúkrunarfræðings við allt sem að því snýr. Þá bíður hennar geislameðferð og í kjölfarið lyfjameðferð.

Nú bíðum við og sjáum hvort Björk verður nógu hress til að komast norður á Akureyri í nokkra daga yfir páskahátíðina.

Björk biður fyrir góðar kveðjur til ykkar allra og þakklæti fyrir stuðning og hlýjar hugsanir.

Með kveðju og þakklæti, Þröstur bróðir.


» 29 hafa sagt sína skoðun

08.04.2011 19:13:44 / bjorkandersen

Erfiðir dagar framundan

Hæ öll sem fylgist með baráttu Bjarkar.

Eftir vikudvöl Bjarkar á spítala í þessari lotu hafa læknar ráðið ráðum sínum og ákveðið í samráði við Björk að hún fari í aðgerð á þriðjudag. Æxli við ristil og í kviðarholi hafa valdið þarmalömun sem þjakað hefur Björk undanfarnar vikur og ekki nema eitt við því að gera. Björk þarf að fá stóma. Sú aðgerð verður framkvæmd á þriðjudag eins og áður segir.

Þetta voru erfiðar fréttir fyrir Björk og okkur öll og mín þurfti tíma til að melta stöðuna. Stuðningur starfsfólks á 11E er ómetanlegur og umhyggja þess á sér engin takmörk. Þ
á fékk Björk heimsókn hjúkrunarfræðings af skurðdeild sem skýrði mjög vel fyrir henni aðgerðina sjálfa og hvað það þýðir að lifa með stóma. Það mun reyna mjög á andlegan styrka Bjarkar á næstunni en ég veit, líkt og þið öll, að hún á þennan styrk til. Saman siglum við gegnum þetta.

Nú er "veisla" hjá Björk, það þarf að troða hana út af kaloríum og orku fyrir aðgerðina en "veislan" samanstendur af hvítu sulli, næringu sem hún fær í æð. Trúið mér, þegar ég sá sullið renna úr pokanum þá var ég nálægt því að lauma til hennar alvörumat á sjúkrastofuna í dag en slíkt hefur ekki farið inn um munn Bjarkar í rúma viku.

Björk verður vonandi fljót að jafna sig eftir aðgerðina en um 10 dögum eftir stómaaðgerðina er fyrirhugað að hefja geislameðferð. Æxli sem fannst í blöðru reyndist vera meinvarp frá brjóstakrabbameininu sem hún hefur glímt við í þessi ár. Sama á líklega við um önnur æxli í kviðarholi hennar. Að lokinni geislameðferð tekur við lyfjameðferð. Það eru því erfiðir dagar framundan.

Björk sendir góðar kveðjur til ykkar af deild 11E á Landspítala.

Með kveðju og þakklæti, Þröstur bróðir.


» 38 hafa sagt sína skoðun

05.04.2011 00:17:15 / bjorkandersen

Lítil kveðja frá Björk

Hæ öll  sem fylgist með töffaranum !

Björk bað mig að setja litla kveðju frá sér hér á bloggið. Björk hefur dvalið á sjúkrahúsi undanfarna daga. Við fórum á bráðamóttökuna í Fossvogi á laugardagskvöld vegna vandamála sem hún glímir við í kjölfar þarmalömunar. Þaðan var hún svo flutt á Hringbrautina. Ekki er ljóst hvað veldur lömuninni, hvort það er vegna meina sem þrýsta á meltingarveg eða eitthvað annað. Læknar gera hvað þeir geta til að finna út úr því og vonandi sér fyrir endann á þeim hluta. Björk fer í sýnatöku á morgun, þriðjudag vegna meins í þvagblöðru og í framhaldinu verður væntanlega magi, ristill og sitthvað fleira skoðað. Þá liggur fyrir að taka erfiðar ákvarðanir um meðferð. Þrátt fyrir að Björk sé kvalin og þreytt á öllu þessu ber hún sig vel. Lífsgæðin eru ekki ýkja mikil hjá henni en hún sér alltaf eitthvað jákvætt á hverjum degi og berst og berst. Hún biður fyrir góðar kveðjur til ykkar og vonast til að komast sem fyrst heim til sín. 

Hún minnir á styrktarreikninginn sinn sem er 0311-13-685 og kt:0607625119. Björk þakkar fyrir allan stuðninginn, kveðjur og hlýjar hugsanir.

Með kveðju og þakklæti. Þröstur bróðir.


» 41 hafa sagt sína skoðun

31.03.2011 21:07:14 / bjorkandersen

Lífið er ekki alltaf eins og ég vil hafa það

Day Good Evening
*Góða kvöldið í annað skiptið í kvöld....já ég var búin að blogga alveg helling þegar allt þurrkaðist út og það er ekki í fyrsta skiptið,þannig að ég ætla ekki að hafa þetta langt núna.Ég fór til læknis í gær og svo í blöðruspeglun í dag í framhaldi af því og það kom í ljós að ég er með æxli í þvagblöðrunni og við endaþarminn og það þarf að svæfa mig í næstu viku og taka sýni úr þessu til að ganga úr skugga um hvort þetta sé sama krabbamein og ég hef verið með eða eitthvað nýtt.Ég hef verið frekar döpur í dag og liðið illa,en ég ætla ekkert að gefast neitt upp það er ekki til í dæminu.En það er ekki þar með sagt að ég sé ekki orðin þreytt og lúin á þessu öllu saman enda búin að berjast lengi.´*Eg er buin að taka ákvörðun um að fara í lyfjameðferð og get þá alltaf bakkað út aftur ef þetta er alveg að fara með mig,en ég vona að ég byrji ekki fyrr en eftir páska því þá kemst ég kannski norður til að hitta gullin mín áður en baráttan byrjar fyrir alvöru aftur.En ég hlýði bara fyrirmælum læknanna núna og ekkert múður með það.
Lavender TY
Mig langar að þakka ykkur fyrir kvittin og ráðleggingarnar og án ykkar og guðs gæti ég þetta ekki,því ein get ég þetta alls ekki.Þess vegna ætla ég að biðja ykkur að halda áfram að kvitta fyrir innlitið og vera pínulítið duglegri ef þið nennið...því það gefur mér kraftinn til að halda áfram að berjast.
Thoughts and prayers
Ég hugsa mikið til ykkar og allra ættingjanna minna og vinanna sem ég á og eru ávallt tilbúnir til að styrkja mig og styðja.Það er ekkert sjálfsagt að eiga góða að þannig að ég er þakklát fyrir ykkur.Ég ætla að gera aðra tilraun til að setja þetta hérna inn og vona að það takist og ætla svo að leggjast upp í sófa í leti.Mig langar að minna á styrktarreikninginn minn sem er 311-13-685 kt.060762-5119 ef þið eruð aflögufær,en ég geri mér grein fyrir því að það er erfitt hjá mörgum en ef ég reyni ekkert,gerist ekkert heldur.Vona að þið eigið yndislegt kvöld elskurnar og hafið það gott .....

Love you töffarinn:haha:


» 33 hafa sagt sína skoðun

23.03.2011 13:43:08 / bjorkandersen

Ég er óttaslegin þessa dagana og kannski ekkert skrítið

GOOD MORNING
Já góðan og blessaðan daginn elsku vinir og vandamenn.Loksins sest ég hér og skrifa dálítið til ykkar,en það verður ekki svo langt í þetta skiptið.Mér hefur ekki liðið vel undanfarið og lenti eina ferðina enn á spítala og var þar í 3 daga og það var erfiður róður sem ég lenti í þar en sem betur fer komst ég í gegnum það án nokkurs skaða.Ég er nú yfirleitt mjög opinská hér inn á blogginu en ég ætla ekki að tala meira um hvað gerðist í þessari sjúkrahúsdvöl því það er frekar persónulegt og ég ætla bara að halda því fyrir mig.
God's Prayer
Já ég treysti algjörlega á guð minn núna þar sem ég fékk ekkert sérstaklega góðar fréttir hjá lækninum núna á mánudaginn.það er spurning hvort krabbinn sé orðinn útbreyddur í kviðarholinu og þá á nýrnasvæðinu og ristilsvæðinu en ég er í rannsóknum núna og hann sagði mér að búa mig undir nýja lyfjameðferð ef ég vildi þiggja hana sem ég bara veit ekkert um.Það sveiflast til í mér hvort ég eigi eða ekki þar sem fyrri lyfjameðferðir hafa farið frekar illa í mig og ég veit ekki nema þessi geri það líka.En ég á eftir að hugsa þetta í þaula.Kjarni mannlegs eðlis birtist í ótal hversdagslegum góðverkum sem marka líf okkar.Ef við hjálpum ekki hvort öðru,hver gerir það þá?Ég er sem sagt með öðrum orðum að reyna að fá álit ykkar á lyfjameðferð eða ekki lyfjameðferð.Ég hlakka til í kvöld þar sem ég er að fá móðir mína í heimsókn og elsku sys er líka að koma og ég get varla beðið eftir að eyða smátíma með þeim þessum elskum og fá líf inn á heimilið.Hvað er betra en að hafa nána ættingja hjá sér þegar manni líður ekki vel.....
roses
Á sunnudaginn næsta þ.e.27 mars verð ég með smáhugvekju úti í Lanholtskirkju og vona að þið látið sjá ykkur sem flest þar.

Fyrirgefningin - íhugunarefni í messu sunnudaginn 27. mars kl. 11

Björk Andersen flytur hugvekju út frá eigin reynslu og 12 spora kerfinu.


Ég finn að það læðist að mér smá kvíði en ég veit líka að guð verður með mér á þessari stundu og ég vona svo sannarlega að fólkið mitt sjái sér fært að mæta og hlusta á mig.
En eina sem ég ætla að gera núna er að minna á styrktarreikninginn minn sem er 0311-13-685 og kt.060762-5119 ef þið sjáið ykkur fært að aðstoða mig elskurnar.Ég er þakklát í hjarta mínu fyrir að eiga ykkur að og þið eruð ávallt jafnyndisleg.Vona að þið haldið áfram að kvitta fyrir innlitið því þið vitið hvað það gefur mér mikið.
Eitt sem mig langar að koma hér að og það er að mig langar að heyra í konunni sem tók allar ljósmyndirnar af mér því ég hef alveg tapað henni frá mér og væri yndislegt ef þú gætir hringt í mig elskan.

Með ást og virðingu
Love you töffarinn

Ég finn að það læðist að mér smá kvíði en ég veit líka að guð verður með mér á þessari stundu og ég vona svo sannarlega að fólkið mitt sjái sér fært að mæta og hlusta á mig.En eina sem ég ætla að gera núna er að minna á styrktarreikninginn minn sem er 0311-13-685 og kt.060762-5119 ef þið sjáið ykkur fært að aðstoða mig elskurnar.Ég er þakklát í hjarta mínu fyrir að eiga ykkur að og þið eruð ávallt jafnyndisleg.Vona að þið haldið áfram að kvitta fyrir innlitið því þið vitið hvað það gefur mér mikið.Eitt sem mig langar að koma hér að og það er að mig langar að heyra í konunni sem tók allar ljósmyndirnar af mér því ég hef alveg tapað henni frá mér og væri yndislegt ef þú gætir hringt í mig elskan.Með ást og virðingu Love you töffarinn


» 44 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 31
Styrktarsíða Bjarkar
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 21 júlí
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Klukkan
Dagsetning
7. febrúar 2012
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 199 dögum
Ísak Logi 7 ára
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 19 dögum
Kolbrún Anna 4 ára
Heimsóknir
Í dag:  53  Alls: 1015904
Þínir flokkar
Talning
Eftir 321 daga
Jólin 2012